Unnið er að því hvernig best sé að standa að nútímavæðingu fasteignaskrár og tekur það einkum á landfræðilegri afmörkun fasteigna (lands og mannvirkja) og staðsetningu staðfanga.

 

Landeignaskrá

Allar lóðir og jarðir á Íslandi verða landfræðilega afmarkaðar í miðlægri fasteignaskrá Fasteignaskrár Íslands en viðhaldið af sveitarfélögum og öðrum samþykktum skráningaraðilum. Í landeignaskrá verður jafnframt haldið utan um mæli upplýsingar, lóðablöð og fleira er við kemur hnitsetningu og uppmælingu landamerkja.

 

Mannvirkjaskrá

Fasteignaskrá Íslands mun leitast við að hnitsetja alla mannvirkjahluta sem skráðir eru í fasteignaskrá. Afmörkun mannvirkja byggist á því að hnitsetja grunnflöt mannvirkis, þar sem hann sker yfirborð jarðar.

 

Staðfangaskrá

Fasteignaskrá Íslands mun í samstarfi við aðrar ríkisstofnanir og aðra hlutaðeigandi aðila, hanna og viðhalda staðfangaskrá. Að samræma skráningu staðfanga á Íslandi felur í sér að tryggja einkvæmni upplýsinga, minnka kostnað hins opinbera við viðhald slíkrar skrár og auka gæði gagna. Hnistsetning staðfangs er almennt miðað við aðgengi inn á lóð eða byggingu.

  • Minnka letur
  • Stækka letur
  • Dökkur bakgrunnur
  • Mínar stillingar
  • Prenta síðu

Leit

Leit
English