Á milli áranna 2005 og 2006 hækkaði einfalt meðaltal fermetraverðs íbúðarhúsnæðis á Norðurlandi eystra mest allra landshluta eða um 35,3%. Þar á eftir kemur Vesturland 28,6%, Reykjanes 23,2%, Austurland 16,1%, Suðurland 14,7%, Vestfirðir 14,5%, höfuðborgarsvæðið 12,1% og Norðurland vestra 8,6%.

Hér að neðan er tafla með þróun einfalds meðaltals fermetraverðs íbúðarhúsnæðis eftir landshlutum frá árinu 1990 þar sem grunngildið er 100 árið 1990 í öllum landshlutum.  Fermetraverðið á Vesturlandi er til að mynda 427% hærra árið 2006 heldur en það var árið 1990.

Verðþróun íbúðarhúsnæðis eftir landshlutum frá 1990 (1990=100)
Ár Höfuðborgar-
svæðið
Reykjanes Vesturland Vestfirðir Norðurland
vestra
Norðurland
eystra
Austurland Suðurland
1990 100 100 100 100 100 100 100 100
1991 108 105 104 98 96 112 119 109
1992 118 113 119 108 106 113 122 122
1993 119 124 127 107 130 117 130 119
1994 122 131 147 118 124 122 124 125
1995 118 121 144 126 125 120 136 122
1996 119 126 147 119 110 124 141 127
1997 121 129 149 125 128 126 145 125
1998 130 139 152 127 130 132 132 134
1999 151 142 174 123 138 149 158 144
2000 175 147 179 115 131 154 150 162
2001 185 162 200 111 137 164 148 175
2002 194 185 211 121 142 177 162 192
2003 218 205 257 117 145 192 164 221
2004 247 224 275 128 181 210 236 246
2005 327 274 332 157 212 248 285 310
2006 366 337 427 180 230 335 331 356

Ársmeðaltöl. Tölurnar byggja á einföldu meðaltali fermetraverða íbúðarhúsnæðis.

Frétt þessi er unnin á grundvelli gagna sem fyrir liggja 13 febrúar 2007.

Birtingu verðþróunar eftir landshlutum er ætlað að varpa ljósi á þróun fasteignaverðs samkvæmt þeim gögnum sem liggja fyrir á hverjum tíma. Fasteignamat ríkisins áskilur sér rétt til að endurskoða verðþróunina aftur í tímann í ljósi fyllri gagna eða fágaðri aðferðafræði.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum, vinsamlega getið heimildar.

 

  • Minnka letur
  • Stækka letur
  • Dökkur bakgrunnur
  • Mínar stillingar
  • Prenta síðu

Leit

Leit
English