Venjulegt útlit Breyta stillingum

Hjúskapur og skráð sambúð

Staðfest samvist verði hjúskapur

Beiðni um að staðfest samvist verði viðurkennd sem hjúskapur

Skráning sambúðar

Hægt er að sækja eyðublaðið "Beiðni um skráningu sambúðar í þjóðskrá" á netið, prenta það út og senda til Þjóðskrár Íslands sem símbréf (569 2949) eða með pósti. Athugið að fólk sem óskar eftir skráningu á sambúð sinni í þjóðskrá verður að hafa sama lögheimili og upphaf sambúðar miðast við þann dag sem beiðni er lögð fram. Báðir umsækjendur verða að skrifa undir beiðnina.

Sambúðarslit  

Ef sambúðaraðilar eiga börn saman, þarf að ganga frá sambúðarslitum hjá sýslumanni, sem sendir síðan skýrslu þar að lútandi til Þjóðskrár Íslands.
Ef ekki er um sameiginleg börn að ræða er nóg að fylla út "Flutningstilkynning innanlands" og flytja þá annað hvort báðir eða annar aðilinn lögheimili sitt, eftir því sem við á. Ágætt er að skrifa "sambúðarslit" í athugasemdir.
Nánari upplýsingar um sambúðarslit er að finna á vef sýslumannsins í Reykjavík.

  • Minnka letur
  • Stækka letur
  • Dökkur bakgrunnur
  • Mínar stillingar
  • Prenta síðu

Leit

Leit
English