Venjulegt útlit Breyta stillingum

Vottorð þjóðskrár

Hér er yfirlit yfir þau vottorð sem hægt er að fá hjá Þjóðskrá Íslands. Einnig kemur fram hvaða upplýsingar þurfi svo hægt sé að afgreiða vottorðin. Áður en vottorð er afgreitt þarf að greiða fyrir það og senda Þjóðskrá Íslands ljósrit af greiðslukvittun. Einnig er hægt að senda tilkynningu um greiðslu með tölvupósti. Í skýringum með greiðslu þarf að koma fram tegund vottorðs og fyrir hvern vottorðið er. Ef nota á vottorð erlendis skal taka það fram.

Gjaldskráin gildir frá 1. janúar 2009.

Athugið að afgreiðslutími vottorða er 5 dagar. Hægt er að fá vottorð send í pósti þegar greiðsla hefur verið staðfest.
  

Vottorð

Það sem upplýsa þarf

Kostn.

  • Lögheimilisvottorð
    Staðfesting á lögheimili
Nafn og kennitala. 900 kr.
  • Búsetuvottorð
    Búseta á tilteknu tímabili
Nafn og kennitala. 900 kr.
  • Fæðingarvottorð
Nafn og kennitala. 900 kr.
  • Hjónavígsluvottorð
Nafn og kennitala. 900 kr.
  • Sambúðarvottorð
Nöfn og kennitölur beggja aðila. 900 kr.
  •  Staðfesting á dánardegi
Nafn og kennitala hins látna og dánardagur. 900 kr.
  •  Vottorð um fjölskyldustærð
Nöfn og kennitölur. 900 kr.
  •  Vottorð um hjúskaparstöðu
Nafn og kennitala. 900 kr.

Beiðnir um vottorð eru afgreidd:

  • í síma 569 2900, bréfasíma 569 2949
  • með tölvupósti  
  • í afgreiðslu Þjóðskrár Íslands, Borgartúni 21, 150 Reykjavík.
  • Minnka letur
  • Stækka letur
  • Dökkur bakgrunnur
  • Mínar stillingar
  • Prenta síðu

Leit

Leit
English