Venjulegt útlit Breyta stillingum

Skriflegt samþykki forsjármanna

Þegar sótt er um vegabréf fyrir barn yngra en18 ára skulu báðir forsjármenn mæta, ásamt barni, til þess að sækja um vegabréf barnsins, - ef annar forsjármaður barns getur ekki mætt skal hann rita vottað samþykki sitt á þar til gert eyðublað.

Fari einn með forsjá barns er undirskrift hans nægjanleg vegna umsóknar um vegabréf því Þjóðskrá Íslands mun staðfesta að viðkomandi fari einn með forsjána. Til að forðast tafir í útgáfu vegabréfs er þó vakin athygli foreldra sem fara einir með forsjá, að gangi þeir í hjúskap þarf ennfremur samþykki stjúpforeldris. Taki þeir aftur á móti upp sambúð þarf samþykki sambúðarforeldris eftir að sambúðin hefur verið skráð í þjóðskrá samfellt í 1 ár.

Heimilt er að gefa út vegabréf samkvæmt umsókn annars forsjárforeldris þegar hitt forsjárforeldrið er ófært um að veita samþykki sitt vegna sjúkdóms, fjarvistar eða annarra sérstakra aðstæðna að undangenginni athugun á umræddum aðstæðum og mati á því hvort hætta sé á að barn verði fært úr landi með ólögmætum hætti.

Samþykki lögráðamanns þarf til að gefið verði út vegabréf til þess sem sviptur hefur verið sjálfræði.

  • Minnka letur
  • Stækka letur
  • Dökkur bakgrunnur
  • Mínar stillingar
  • Prenta síðu

Leit

Leit
English