Fasteignaskrá Íslands hlaut í febrúar 2006 vottun frá Bresku staðlastofnuninni, BSI, samkvæmt BS 7799-2:2002 staðlinum um stjórnun upplýsingaöryggis.
Fasteignir eru verðmætasta eignasafn landsmanna. Í fasteignaskrá, sem Fasteignaskrá Íslands heldur, er að finna margþættar upplýsingar um fasteignir. Auk upplýsinga um lóðir og jarðir, gerð og eiginleika bygginga og fasteignamat og brunabótamat þeirra, eru í skránni þinglýstar upplýsingar um eigendur, veðbönd og kvaðir auk upplýsinga um fasteignamarkaðinn og þróun hans. Frá og með næsta ári leggja sveitarfélög fasteignaskatta og fasteignagjöld á í skránni.