Hlutverk Fasteignaskrár Íslands
er að halda fasteignaskrá, meta fasteignir brunabótamati og fasteignamati og annast rannsóknir á fasteignamarkaðinum. Til að sinna hlutverki sínu hefur stofnunin að leiðarljósi að viðhafa rétta stjórnsýslu og virka framleiðslu í öllu starfi sínu. Starfseiningar stofnunarinnar eru þessar:
Stjórn mótar starf og innra skipulag stofnunarinnar og hefur eftirlit með rekstri hennar. Hana skipa Þórhallur Arason formaður, Sigrún Björk Jakobsdóttir og Helga Jónsdóttir.
Forstjóri stýrir stofnuninni í samræmi við lög, reglur og erindisbréf, samning ráðuneytis og stofnunar og starfs- og rekstraráætlanir. Forstjóri er Haukur Ingibergsson. Aðstoðarforstjóri er Margrét Hauksdóttir.
Skráningar- og lögfræðisvið hefur forsögn um skráningaraðferðir, skráningarkerfi og framkvæmd skráningar í fasteignaskrá, lögfræðileg málefni, stjórnsýslu og skráningu og mat fasteigna. Framkvæmdastjóri er Margrét Hauksdóttir.
Mats- og hagsvið hefur forsögn um matsaðferðir, matskerfi og matsframkvæmd, fjöldamat, skráningu og mat fasteigna og rannsóknir á fasteignamarkaðinum. Framkvæmdastjóri er Örn Ingvarsson.
Gæða- og rekstrardeild annast gæðamál, mannauðsmál, fjárhag, rekstur, skrifstofuhald, vef, skjalamál og öryggismál. Forstöðumaður er Sólveig Jóhanna Guðmundsdóttir.
Tölvudeild annast öflun og rekstur vélbúnaðar, hugbúnaðar og gagnagrunna ásamt notendaþjónustu og öryggismálum. Forstöðumaður er Sigurjón Friðjónsson.
Þjónustudeild annast þjónustu m.a. varðandi landupplýsingar, álagningarkerfi, innskráningu, upplýsingagjöf og skráningu og mat fasteigna. Forstöðumaður er Björn Magnússon.