Aðalafgreiðsla höfuðborgarsvæðisins fyrir umsóknir um vegabréf er hjá sýslumanninum í Kópavogi á Dalvegi 18. Sjá kort frá ja.is.
Sækja má um vegabréf hjá öllum sýslumannsembættum utan Reykjavíkur, óháð búsetu. Umsækjendur vegabréfa þurfa að mæta í eigin persónu á umsóknarstað.
Vinsamlegast athugið að á sumrin er mikið álag á umsóknarstöðum um og eftir hádegi.
Allir umsóknarstaðir innanlands
Umsóknarstaðir erlendis
Það sem umsækjandi þarf að hafa með sér er sótt er um vegabréf- Eldra vegabréf, sé það enn í gildi
- Persónuskilríki með mynd
- Greiðslu fyrir vegabréfið
- Samþykki forsjármanns/forsjármanna þegar það á við
- Samþykki lögráðamanns þegar það á við
Á umsóknarstað er tekin andlitsmynd, fingraför og rithandarsýnishorn.