Hvað er í þjóðskrá?

Í þjóðskrá eru m.a skráðar kennitölur manna, nöfn þeirra, kyn, hjúskaparstaða (makar, samvistarmakar, sambúðarmakar, ógift eða kvæntur), börn, lögheimili, aðsetur ef við á, póstfang, fæðingarstaður, ríkisfang, hvort menn vilji fá sendan markpóst, hvert sóknargjöld vegna trúfélaga eigi að renna o.fl. auk breytinga (breytingaskrá) sem verða á þessum atriðum og öðrum högum manna.

Þá er haldin sérstök skrá yfir alla sem látast og hafa verið í þjóðskrá (horfinnaskrá).

Haldin er sérstök skrá yfir erlenda ríkisborgara sem fá úthlutað kennitölu en eru ekki skráðir með lögheimili hér á landi (utangarðsskrá).

Skráning í þjóðskrá

Tekið er við tilkynningum fólks um búferlaflutninga, innanlands og milli landa, beiðnum um nafnbreytingar, nafngjafir barna og skráningu sambúðar. Ýmis vottorð eru gefin út hjá Þjóðskrá s.s. fæðingarvottorð, vottorð um hjúskaparstöðu, sambúðarskráningu, búsetu og staðfestingu á dánardegi.

 

 

 

 

 

 

 

  • Minnka letur
  • Stækka letur
  • Dökkur bakgrunnur
  • Mínar stillingar
  • Prenta síðu

Leit

Leit
English