Svalaskýli
Í byggingarreglugerð (441/1998) er svalaskýli skilgreint:
Með svalaskýli er átt við opnanlegan skjólvegg utan um svalir. Í þegar byggðum fjölbýlishúsum skal sækja um byggingarleyfi fyrir svalaskýlum sem gildir fyrir allt húsið samkvæmt ákvæðum laga um fjöleignarhús. Með umsókninni skal fylgja skriflegt samþykki meðeigenda, sbr. Lög um fjöleignarhús. Með umsókninni skal einnig fylgja útektarskýrsla hönnuðar á brunavörnum hússins og hvaða endurbætur verða gerðar á þeim sé þeirra þörf.
Frekari kröfur eru vegna svalaskýla í ofannefndri grein.
Svalaskýli skulu teljast í skráningartöflu lokaðar svalir í höfuðflokki S og lokunarflokki A. Enginn greinarmunur er gerður á svölum og svalaskýlum í skráningartöflu, annar en lokunarflokkur. Þau hafa sömu áhrif á hlutfallstölur og svalir, þ.e. skiptarúmmál er 1 x botnflötur, en hafa ekki áhrif á botnflöt, birt flatarmál, brúttóflatarmál, nettóflöt eignar né rúmmál hennar. Svalaskýli eru utan hjúpflatar og því utan varmaeinangrunar húss.
Ef svalaskýli er sameinað rými í lokunarflokki A, þ.e. ef birt flatarmál eykst, skal sækja um það sérstaklega til byggingarnefndar og fer þá með breytingu á skráningu svalaskýlis sem annarra lokaðra rýma.
Ákvæði til bráðabirgða
Þar til nýtt forrit Fasteignaskrár Íslands fyrir skráningartöflu verður tekið í notkun skal skrá svalaskýli í lokunarflokki B.