Þinglýsingarhluti fasteignaskrár
Auk þeirra almennu fasteignaupplýsinga sem nálgast má í opnum aðgangi í Fasteignaskrá er einnig boðið upp á aðgang að veðbandayfirlitum fasteigna. Veðbandayfirlit eru fengin úr þinglýsingarhluta fasteignaskrár.
Umsókn og kostnaður
Gjald fyrir hvert veðbandayfirlit fyrir hvert veðbandayfirlit er 630 kr.
Þú getur sótt um aðgang að veðbandayfirlitum auk upplýsinga úr fasteignahluta Fasteignaskrár með því að fylla út umsóknareyðublaðið hér að neðan og senda í pósti eða í faxnúmer 515-5420. Nánari upplýsingar veitir Anna Halldóra Sigtryggsdóttir annah(hjá)fasteignaskra.is.
Umsókn um aðgang að veðbandayfirlitum auk upplýsinga úr fasteignahluta fasteignaskrá. (Pdf-23 Kb)
Tenging við vefþjónustur
Mögulegt er að tengja upplýsingar úr Fasteignaskrá beint inn í önnur tölvukerfi með því að nýta svokallaðar vefþjónustur. Skilyrði slíkrar tengingar er að umsækjandi (fyrirtæki eða stofnun) eigi rafræn skilríki frá viðurkenndum vottunaraðila til auðkenningar.
Umsókn um vefþjónustuaðgang að Fasteignaskrá. (pdf 93 Kb)