Beiðni um nafnleynd í Fasteignaskrá

Samkvæmt lögum um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga (77/2000) geta einstaklingar andmælt því að nöfn þeirra séu notuð í markaðssetningarstarfsemi. Þetta felur í sér að nöfnin verða þá hvorki notuð á markpóst eða úthringilista vegna markaðsstarfsemi, svo dæmi sé tekið.

Hjá Hagstofunni getur þú tekið nafn þitt af úrtakslistum úr þjóðskrá. Til þess að svo verði er nóg að senda tölvupóst til Þjóðskrár (thjodskraatthjodskra.is) með nafni og kennitölu. Þjóðskrá er grundvöllur nafna í Fasteignaskrá. Sé einstaklingur á skrá Hagstofunnar felur það í sér að nafn hans verður ekki fengið úr Fasteignaskrá til nota við markaðssetningu.

Óskir þú eingöngu eftir því að undanskilja að upplýsingar úr Fasteignaskrá verði notaðar í þessu skyni getur þú tilkynnt það til Fasteignaskrár Íslands með því að senda tölvupóst þar sem nafn og kennitala koma fram á fasteignaskraatfasteignaskra.is. Slík tilkynning kemur þó ekki í veg fyrir að upplýsingar frá öðrum aðilum verði notaðar í markaðsskyni.

  • Minnka letur
  • Stækka letur
  • Dökkur bakgrunnur
  • Mínar stillingar
  • Prenta síðu

Leit

Leit
English