GJALDSKRÁ
Fasteignaskrár Íslands

I. kafli. Gjald fyrir afnot matsfjárhæða og matskerfa og skráningu nýrra fasteigna

1. gr.
Gjald fyrir afnot af fasteignamati og kerfi til álagningar fasteignaskatta

Sveitarfélög skulu greiða gjald fyrir afnot af fasteignamati og kerfi til álagningar fasteignaskatta og fasteignagjalda; skal gjaldið nema 0,0060% af heildarfasteignamati í viðkomandi sveitarfélagi 31. desember ár hvert . Gjaldið skal innheimt árlega í janúarmánuði.

2. gr.
Gjald fyrir afnot af brunabótamati og kerfi því viðkomandi

Vátryggingarfélög skulu greiða gjald fyrir afnot af brunabótamati og kerfi því viðkomandi; skal gjaldið nema 0,00021% af brunabótamati allra húseigna sem eru tryggðar hjá viðkomandi vátryggingafélagi í lok hvers mánaðar. Gjaldið skal innheimt mánaðarlega.

3. gr.
Gjald fyrir skráningu fasteignar

Gjald fyrir skráningu nýrrar fasteignar í fasteignaskrá kr. 18.000

II. kafli. Fasteignahluti fasteignaskrár

4. gr.
Einingaverð úr fasteignahluta fasteignaskrár

Sérstakt einingaverð skal vera fyrir upplýsingar úr hverju svæði í fasteignahluta fasteignaskrár. Þessi svæði eru:

  1. a) mannvirkja- og lóðasvæði
  2. b) matssvæði
  3. c) eigendasvæði
  4. d) önnur svæði

Einingaverð reiknast í samræmi við fjölda svæða sem upplýsingar um hverja fasteign eru sóttar úr og við fjölda fasteigna á eftirfarandi hátt miðað við notkun á einu almanaksári:

Fjöldi fasteigna Eitt svæði Tvö svæði Þrjú svæði Fjögur svæði
1-70.000 20 kr. 40 kr. 60 kr. 80 kr.
70.001-140.000 17 kr. 34 kr. 51 kr. 68 kr.
Fleiri en 140.000 14 kr. 28 kr. 42 kr. 56 kr.

5. gr.
Miðlun upplýsinga með vefuppfletti

Aðgangur að uppflettikerfi á heimasíðu Fasteignaskrár Íslands.

Einingaverð fyrir upplýsingar úr hverju svæði fasteignar í fasteignaskrá fer skv. 4. gr.

Mánaðarlegt þjónustugjald kr. 1.000
Yfirlitsmynd (yfirlit heitis) kr. 30
Eigendasaga fasteignar kr. 30
Breytingasaga fasteignar kr. 30

6. gr.
Miðlun upplýsinga með vefþjónustu

Aðgangur að upplýsingum sem fengnar eru með skeytasendingum með vefþjónustu.

Einingaverð fyrir upplýsingar úr hverju svæði fasteignar í fasteignaskrá fer skv. 4. gr.

Stofngjald vefþjónustu kr. 50.000
Mánaðarlegt þjónustugjald kr. 1.000
Gjald fyrir breytingar vegna rafrænna skilríkja kr. 4.500

7. gr.
Gagnaveitur fasteignaskrár

Úrtak úr fasteignahluta fasteignaskrár sem sent er með reglubundnu millibili.

Einingaverð fyrir upplýsingar úr hverju svæði fasteignar fer skv. 4. gr.

Uppfærslugjald leggst á einingaverð skv. 4. gr. og skal vera eftirfarandi:

Stofngjald gagnaveitu kr. 150.000
Tíðni afhendinga Álag
Mánaðarlega 3%
Vikulega 6%
Daglega 33%

Gera skal skriflegan samning og leggja saman einingaverð og uppfærslugjald í heildargreiðslu fyrir eitt ár. Þeirri upphæð má deila í mánaðarlegar greiðslur.

III. kafli. Þinglýsingahluti fasteignaskrár

8. gr.
Einingaverð úr þinglýsingahluta fasteignaskrár

Vélrænar fyrirspurnir úr þinglýsingahluta fasteignaskrár kr. 630
Staðfesting á tilteknum upplýsingum um eina fasteign kr. 75

9. gr.
Miðlun upplýsinga með vefuppfletti

Aðgangur að uppflettikerfi á heimasíðu Fasteignaskrár Íslands.

Einingaverð fyrir upplýsingar úr hverju svæði fasteignar í fasteignaskrá fer skv. 8. gr.

Mánaðarlegt þjónustugjald kr. 1.000
Yfirlitsmynd (yfirlit heitis) kr. 30
Eigendasaga fasteignar kr. 30
Breytingasaga fasteignar kr. 30

10. gr.
Miðlun upplýsinga með vefþjónustu

Aðgangur að upplýsingum sem fengnar eru með skeytasendingum með vefþjónustu.

Einingaverð fyrir upplýsingar úr hverju svæði fasteignar í fasteignaskrá fer skv. 8. gr.

Stofngjald vefþjónustu kr. 50.000
Mánaðarlegt þjónustugjald kr. 1.000
Gjald fyrir breytingar vegna rafrænna skilríkja kr. 4.500

11. gr.
Gagnaveitur fasteignaskrár

Úrtak úr þinglýsingahluta fasteignaskrár sem sent er með reglubundnu millibili.

Einingaverð fyrir upplýsingar um hverja fasteign fer skv. 8. gr.

Stofngjald gagnaveitu kr. 150.000

Uppfærslugjald leggst á einingaverð skv. 8. gr. og skal vera eftirfarandi:

Tíðni afhendinga Álag
Mánaðarlega 3%
Vikulega 6%
Daglega 33%

Gera skal skriflegan samning og leggja saman einingaverð og uppfærslugjald í heildargreiðslu fyrir eitt ár. Þeirri upphæð má deila í mánaðarlegar greiðslur.

IV. kafli. Kaupskrárhluti fasteignaskrár

12. gr.
Einingaverð úr kaupskrárhluta fasteignaskrár

Einingaverð úr kaupskrárhluta fasteignaskrár er reiknað í samræmi við fjölda fasteigna sem upplýsingar eru fengnar um og skal vera eftirfarandi:

Einingaverð úr kaupskrárhluta kr. 550

13. gr.
Miðlun upplýsinga með vefþjónustu

Aðgangur að upplýsingum sem fengnar eru með skeytasendingum með vefþjónustu.

Einingaverð fyrir upplýsingar úr hverju svæði fasteignar í fasteignaskrá fer skv. 12. gr.

Stofngjald vefþjónustu kr. 50.000
Mánaðarlegt þjónustugjald kr. 1.000
Gjald fyrir breytingar vegna rafrænna skilríkja kr. 4.500

14. gr.
Gagnaveitur kaupskrárhluta

Úrtak úr kaupskrárhluta fasteignaskrár sem sent er með reglubundnu millibili.

Einingaverð fyrir upplýsingar um hverja fasteign fer skv. 12. gr.

Stofngjald gagnaveitu kr. 150.000

Uppfærslugjald leggst á einingaverð skv. 12. gr. og skal vera eftirfarandi:

Tíðni afhendinga Álag
Mánaðarlega 10%
Vikulega 40%
Daglega 60%

Gera skal skriflegan samning og leggja saman einingaverð og uppfærslugjald í heildargreiðslu fyrir eitt ár. Þeirri upphæð má deila í mánaðarlegar greiðslur.

V. kafli. Staðfangahluti fasteignaskrár

15. gr.
Einingaverð úr staðfangahluta fasteignaskrár

Einingaverð úr staðfangahluta fasteignaskrár er reiknað í samræmi við fjölda hnita sem upplýsingar eru fengnar um og skal vera eftirfarandi:

Fjöldi hnita Einingaverð kr.
Af fyrstu 5.000 8
Af næstu 10.000 4
Af næstu 20.000 2
Af næstu 40.000 og umfram það 1
Afhendingargjald gagna kr. 18.000
Gjald fyrir áritun á geisladisk kr. 1.000

16. gr.
Miðlun upplýsinga með vefþjónustu

Aðgangur að upplýsingum sem fengnar eru með skeytasendingum með vefþjónustu.

Einingaverð fyrir upplýsingar um hverja fasteign fer skv. 15. gr.

Stofngjald vefþjónustu kr. 50.000
Mánaðarlegt þjónustugjald kr. 1.000
Gjald fyrir breytingar vegna rafrænna skilríkja kr. 4.500

17. gr.
Gagnaveitur staðfangaskrárhluta

Úrtak úr staðfangahluta fasteignaskrár sem sent er með reglubundnu millibili.

Einingaverð fyrir upplýsingar úr hverju svæði fasteignar fer skv. 15. gr.

Stofngjald gagnaveitu kr. 150.000

Uppfærslugjald leggst á einingaverð skv. 15. gr. og skal vera eftirfarandi:

Tíðni afhendinga Álag
Mánaðarlega 10%
Vikulega 40%
Daglega 60%

Gera skal skriflegan samning og leggja saman einingaverð og uppfærslugjald í heildargreiðslu fyrir eitt ár. Þeirri upphæð má deila í mánaðarlegar greiðslur.

VI. kafli. Ýmis ákvæði

18. gr.
Sérvinnslur

Eignastöðuvottorð:
Fyrir hverja kennitölu kr. 1.000
Viðbótargjald fyrir hverja færslu kr. 45
Eignasöguvottorð:
Fyrir hverja kennitölu kr. 2.000
Viðbótargjald fyrir hverja færslu kr. 45
Samanburðarvinnslur:
Stofngjald fyrir staðfestingar á upplýsingum um tiltekna fasteign kr. 50.000
Gjald fyrir hverja samanburðarfærslu úr hverju svæði kr. 10

Ef óskað er eftir viðbótarupplýsingum er einingaverð fyrir upplýsingar úr hverju svæði í fasteignaskrá skv. II-V. kafla.

Aðrar sérvinnslur:
Einingaverð fyrir upplýsingar úr hverju svæði í fasteignaskrá fer skv. II-V. kafla.
Byrjunargjald þar með innifalið 2 klst. vinna sérfræðings kr. 28.000
Límmiðagjald pr. stk. kr. 10

Sé óskað eftir endurteknum sérvinnslum þarf að gera um það skriflegan samning þar sem fjöldi afhendinga á 12 mánaða tímabili er ákveðinn. Afsláttur er veittur eftir fjölda afhendinga á tímabilinu sem hér segir en greitt er fyrir hverja afhendingu:

Fjöldi afhendinga Afsláttur af reiknuðu gjaldi afhendingar
1. afhending á ári 100% gjald fyrir 1. afhendingu
2.-4. afhending á ári 25% afsláttur af gjaldi fyrir 2.-4. afhendingu
5.-26. afhending á ári 50% afsláttur af gjaldi fyrir 5.-26. afhendingu
27. afhending og fleiri á ári 75% afsláttur af gjaldi fyrir 27. og síðari afhendingar

19. gr.
Tímavinna

Sérfræðingur pr. klst. kr. 9.500

20. gr.
Vottorð og ljósrit

Vottorð úr fasteignaskrá. kr. 500
Vottorð úr fasteignaskrá á ensku eða dönsku. kr. 1.500
Ljósrit kr. 10
Ljósrit úr fasteignaskrá kr. 500
Vottorð sérsamið skv. beiðni kr. 1.500

21. gr.
Endursöluaðilar á upplýsingum úr fasteignaskrá

Endursöluaðilar eru þeir aðilar sem hafa milligöngu um sölu upplýsinga til endanotenda í áskrift.

Stofngjald til að gerast endursöluaðili er kr. 250.000. Kr. 200.000 af þeirri fjárhæð gengur upp í not endursöluaðila.

Gera þarf samning við Fasteignaskrá Íslands um endursölu upplýsinga.

22. gr.
Heimild til samningagerðar

Fasteignaskrá Íslands er heimilt að gera sérstaka samninga um upplýsingamiðlun, sem víkja frá gjaldskrá þessari, við skráningaraðila í fasteignaskrá.

23. gr.
Undanþágur frá gjaldskrá

Fasteignaskrá Íslands er heimilt að veita eftirtöldum aðilum afslátt eða undanþágur frá gjaldtöku:

  1. a. Námsmönnum sem upplýsingar þurfa vegna verkefna í þágu náms.
  2. b. Opinberum aðilum sem halda skrár á landsvísu og upplýsingar eða vinnsla er hluti af gagnkvæmum upplýsingasamskiptum.
  3. c. Fjölmiðlum ef að upplýsingar varða heildarfjölda eigna eða summutölur úr fasteignaskrá.

24. gr.
Lagaheimild og gildistaka

Gjaldskrá þessi er sett með heimild í 24. gr. laga nr. 6/2001 um skráningu og mat fasteigna, með síðari breytingum, og öðlast gildi 1. janúar 2009. Jafnframt fellur úr gildi gjaldskrá nr. 17/2001 um sama efni.

Fjármálaráðuneytinu, 10. desember 2008.

F.h.r.

Gjaldskrá um þjónustu Fasteignaskrár Íslands nr. 1174/2008

  • Minnka letur
  • Stækka letur
  • Dökkur bakgrunnur
  • Mínar stillingar
  • Prenta síðu

Leit

Leit
English