Í fasteignahluta kemur fram heiti eignar og greinitölur, fasteignamat, stærðir, heiti núverandi og fyrri eigenda ásamt fleiri upplýsingum. Unnt er að leita eftir landnúmeri, fastanúmeri eða heiti fasteignar.
Umsókn og kostnaður
Fyrir aðgang að upplýsingum úr fasteignahluta fasteignaskrár er greitt skv. gjaldskrá:
- Mánaðargjald kr. 1.000.
- Fyrir hverja aðgerð er rukkað samkvæmt einingaverði
Sérstakt einingaverð skal vera fyrir upplýsingar úr hverju svæði í fasteignahluta fasteignaskrár. Þessi svæði eru:
a) mannvirkja- og lóðasvæði
b) matssvæði
c) eigendasvæði
d) önnur svæði
Einingaverð reiknast í samræmi við fjölda svæða sem upplýsingar um hverja fasteign eru sóttar úr og við fjölda fasteigna á eftirfarandi hátt miðað við notkun á einu almanaksári:
Fjöldi fasteigna Eitt svæði Tvö svæði Þrjú svæði Fjögur svæði 1-70.000 20 kr. 40 kr. 60 kr. 80 kr. 70.001-140.000 17 kr. 34 kr. 51 kr. 68 kr. Fleiri en 140.000 14 kr. 28 kr. 42 kr. 56 kr. Eigendasaga fasteignar kr. 30
Breytingasaga fasteignar kr. 30
Þú getur sótt um aðgang að fasteignahluta fasteignaskrár með því að fylla út umsóknareyðublaðið hér að neðan og senda það í pósti eða með faxi í faxnúmer 515 5420. Nánari upplýsingar veitir Anna Halldóra Sigtryggsdóttir annah(hjá)fasteignaskra.is.
Umsókn um aðgang að fasteignahluta fasteignaskrár. (Pdf - 88 Kb)
Tenging við vefþjónustur
Mögulegt er að tengja upplýsingar úr fasteignaskrár beint inn í önnur tölvukerfi með því að nýta svokallaðar vefþjónustur. Til þess að fá slíka tengingu þarf umsækjandi (fyrirtæki eða stofnun) að hafa rafræn skilríki frá viðurkenndum vottunaraðila til auðkenningar. Ef notuð eru auðkenni sem Fasteignaskrá Íslands leggur til er með öllu óheimilt að nota þau skilríki nema í samskiptum við stofunina.
Umsókn um vefþjónustuaðgang að fasteignskrár. (Pdf - 93 Kb)