Ég þarf að fá hærra lán með veði í íbúðinni minni en bankinn segir að brunabótamatið sé of lágt. Get ég fengið hækkun á brunabótamatinu?
Brunabótamat er útreiknaður kostnaður við að endurbyggja húsið á sama stað en tekið er tillit til ástands og aldurs hússins. Við skoðun á húsinu eru byggingarefni og gerð hússins metin. Einnig er tekið mið af innréttingum, gólfefnum, hurðum, gluggum, útveggjum, innveggjum og þaki, svo eitthvað sé nefnt.
Brunabótamat breytist mánaðarlega í samræmi við breytingar á byggingarvísitölu. Brunabótamatið er afskrifað í lok hvers árs og lækkar því eftir því sem húsið eldist. Gert er ráð fyrir því í mati hússins að eðlilegar endurbætur fari fram á húsinu og að ákveðnir byggingahlutar séu endurnýjaðir á nokkurra ára eða áratuga fresti.
Til þess að brunabótamatið hækki þarf að auka verðmæti hússins. Það þýðir að ef skipt hefur verið um innréttingar og gólfefni þurfa þau að vera í hærra verðflokki en þau sem fyrir voru. Brunabótamatið mun þá einungis hækka um mismuninn á þessum verðflokkum. Brunabótamatið hækkar líka ef bætt er við innréttingar eða bætt við einangrun eða utanhússklæðningu.
Nánari upplýsingar um brunabótamat og afskriftir.
Hvers vegna er brunabótamatið á eigninni minni svona miklu lægra en söluverð?
Brunabótamat er útreiknaður kostnaður við að endurbyggja húsið á sama stað að teknu tilliti til ástands og aldur hússins. Ekki skiptir máli við útreikning brunabótamats hvar á landinu húsið er staðsett en brunabótamatið lækkar því eftir því sem húsið eldist.Gjöld vegna lóðar ásamt lóðarmati eru ekki inni í brunabótamati hússins.
Söluverðmæti fasteigna fer mikið eftir staðsetningu, fasteignir í miðbæ Reykjavíkur eru til dæmis dýrari en fasteignir úti á landi. Fasteignaskrá Íslands skráir söluverðmæti allra þinglýstra kaupsamninga og fær þannig upplýsingar um söluverðmæti eigna á öllu landinu. Fasteignamat tekur mið af söluverðmætinu ásamt ástandi og byggingarefnum hússins.
Ef brunabótamatið hjá mér hækkar þarf ég þá að borga meiri gjöld af húsinu?
Hækkun á brunabótamati getur leitt til hækkunar á fasteignamati. Fasteignamat tekur mið af söluverðmætinu ásamt ástandi og byggingarefnum hússins.
Ef fram koma nýjar upplýsingar um ástand og gerð húss við skoðun þess getur það haft áhrif á fasteignamatið. Fasteignagjöld sveitarfélaganna taka mið af fasteignamati. Ef fasteignamatið hækkar þá hækka fasteignagjöldin líka.
Tryggingafélögin miða iðgjöld af brunatryggingum við brunabótamatið svo ef það hækkar þá hækkar verð trygginganna líka.