Óskar þú eftir að fá Fasteignaskrá til þess að framkvæma fyrsta brunabótamat eignar, hafa breytingar átt sér stað á eigninni eða óskar þú eftir endurreiknun brunabótamats?
Mögulegt er að panta brunabótamat í síma 515 5300 eða með því að fylla út formið hér að neðan. Beiðni þurfa að fylgja upplýsingar um nafn og síma húseiganda sem hringja má í á skrifstofutíma frá kl. 8:00 - 16:00.
Niðurstöðu Fasteignaskrár Íslands má ávallt skjóta til yfirfasteignamatsnefndar sem kveður upp fullnaðarúrskurð.
Athugasemd við brunabótamat
Ef þú sættir þig ekki við gildandi brunabótamat getur þú ávallt krafist endurmats brunabótamats á eigin kostnað. Sjá gjaldskrá vegna brunabótamats.
Fyrsta brunabótamat
Húseiganda er skylt að óska eftir brunabótamati nýrrar húseignar ekki síðar en fjórum vikum eftir að hún er tekin í notkun, sjá lög um brunatryggingar númer 48 frá 1994.
Starfsmaður Fasteignaskrár Íslands skoðar þá eignina og gefur út mat. Fyrsta brunabótamat er húseigandanum að kostnaðarlausu en álagning skipulagsgjalds fer fram í kjölfar þess. Sjá reglugerð um skipulagsgjald.
Eyðublað vegna beiðni um breytingu á álagningu skipulagsgjalds
Ef breytingar eiga sér stað
Húseiganda er skylt að óska nýs brunabótamats á húseign ef ætla má að verðmæti hennar hafi aukist vegna endurbyggingar eða endurbóta, enda er það til hagsbóta fyrir eigandann ef tjón ber að höndum að brunabótamat endurspegli raunverulegt vátryggingarverðmæti.