Fasteignamat 2010
Fasteignaskrá Íslands hefur tekið upp nýjar og endurbættar aðferðir við útreikninga á fasteignamatinu til þess að fá raunhæfara mat
Fasteignaskrá Íslands hefur tekið upp nýjar og endurbættar aðferðir við útreikninga á fasteignamatinu til þess að fá raunhæfara mat
Fasteignamat er gangverð sem ætla má að eign hefði haft í kaupum og sölum. Matið er gert í maí mánuði ár hvert og miðast við verðlag í febrúar. Hið nýreiknaða mat tekur gildi í árslok. Fasteignamat tekur bæði til húss og lóðar og skiptist í húsmat og lóðarmat.
Tilgangur fasteignamats er fyrst og fremst að skapa grundvöll fyrir álagningu opinberra gjalda en fasteignamatið er stofn fasteignagjalda og erfðafjárskatts.
Í brunabótamati felst mat á því hvað það myndi kosta að reisa hús á ný ef það yrði eldi að bráð. Brunabótamat miðast við byggingarkostnað og tekur tillit til aldurs, slits, viðhalds og ástands eignar.
Matið er vátryggingarfjárhæð og út frá því er lögbundin brunatrygging reiknuð út.